Eyjahaf (stundum nefnt á íslensku Ægeushaf, Grikklandshaf eða Grikksalt í eldra máli; gríska: Αἰγαῖον Πέλαγος Aigaion Melagos; tyrkneska: Ege Denizi) er hafsvæði í austanverðu Miðjarðarhafi á milli Grikklands og Anatólíuskagans. Það tengist Marmarahafi og Svartahafi um Dardanellasund og Bosporussund. Í suðri afmarka Krít og Ródos hafið frá meginhluta Miðjarðarhafs.